Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

SGI á Íslandi

BRJÁLAÐ að gera fyrir eina manneskju

21. nóvember 2008 klukkan 00:07
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum
Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki.
Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það)
Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina
og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.... Nánar

hláturinn l e n g i r lífið.......

07. nóvember 2008 klukkan 20:24
Hjónin sátu og ræddu um lífið og dauðann. Þar kom að eiginmaðurinn sagði að
hann vildi ekki að sér væri haldið lifandi með tækjum og fljótandi næringu.... Nánar

HIMNARÍKI HVAÐ????

03. nóvember 2008 klukkan 20:00
Þrjár konur lentu í bílslysi, dóu og fóru til himna. Þegar þær komu
þangað sagði Lykla-Pétur við þær, 'Það er aðeins ein regla á himnum: ekki
stíga á endurnar!' Þær fóru inn um hliðið og sáu að það voru ekkert nema
endur út um allt. Það var eiginlega ómögulegt að stíga ekki á neina þeirra.
Konurnar þrjár pössuðu sig á því að stíga ekki á neina önd, en því
miður steig ein konan ofan á eina önd. Um leið kom Lykla-Pétur með ljótasta
mann sem hún hafði á ævi sinni séð.
Lykla-Pétur hlekkjaði þau saman og sagði 'Refsingin fyrir að stíga ofan á
önd er að eyða ævinni, hlekkjuð við þennan ljóta mann!'... Nánar

meira krepputal

02. nóvember 2008 klukkan 23:45
An American said:
- We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash.... Nánar

það eru allir að reyna að spara

01. nóvember 2008 klukkan 21:12
Par nokkurt á sjötugsaldri fór til læknis. Læknirinn spurði hvað hann gæti gert

fyrir parið. Maðurinn svaraði! Viltu horfa á okkur stunda kynlíf?



Lækninum brá í brún en samykkti. Þegar parið hafði lokið sér af sagði læknirinn! Það er

ekkert að kynlífinu ykkar. Og rukkaði um 4000 krónur.



Þetta gerðist margar vikur í röð. Parið pantaði tíma,stundaði kynlíf, borgaði lækninum og fór. Eftir

nokkur skipti spurði læknirinn. Hverju eruð þið reyna að komast að?... Nánar

við erum komin heim frá spáni

22. júní 2008 klukkan 00:08

Það er dásamlegt að vera komin heim.

Ferðin var samt alveg dásamleg, brúðkaupið æði, Lárus Ingi fann eðlu í blómabeðunum upp á þakinu þar sem veislan var og eyddi kvöldinu með rassinn útúr blómabeðunum til að leita að henni svo hann gæti sannað sitt mál, Rakel sá líka eðlu svo að við tökum þau trúanlegJ veislan byrjaði klukkan átta um kvöldið, fyrst vorum við boðin í stóran sal með garði fyrir utan, drykkir á barnum og mikið tekið af myndum. Þar vorum við til um það bil klukkan tíu og þá fórum við upp á þak á hótelinu. Þar voru svo bornar fram veitingar í gríð og erg í nærri tvo tíma. Og svo kom auðvitað þessi líka frábæra terta, rosalega góð. Seville fallegt, gaman að sjá meira en bara ströndina sem við ætluðum að eyða fríinu áJ við mæðgur byrjuðum auðvitað á því að fá sár á lappirnar, ég áður en við fórum og hún á brúðkaupsdaginnJ svo að á milli athafnar og veislu var farið í búðir að kaupa skó á okkur. Við tókum Tönyu Ósk með okkur til Sevilla og það gekk bara frábærlega vel, hún er óskaplega meðfærileg þessi elska, ofsalega ljúf og góð.
 

Það voru 2 smábörn í ferðinni og þær voru báðar eins og ljós, ég átti von á að það væri nú meira mál að vera með svona lítil börn í sólinni, en það gekk allavega vel með þessar tvær fallegu prinsessur.

Við gerðum sirka bát það sem flestir túristar gera í útlöndum, versluðum smá, fórum í Tivoli, út að borða, sátum á barnum, út að borða, leigðum bíl, út að borða, fórum í sund og sólbað(samt bara í nokkrar mínútur), löbbuðum um og………………..


Þegar við fórum í Tivoli þá plataði Þórir mig til að fara í draugahúsið með sér, það sem maður gerir ekki fyrir börnin sínJ og við gerðum það mjög seint, klukkan var alveg um miðnætti, og við máttum bíða lengi til að komast inn útaf því að miðasalan fór í pásu, það er nú allt soldið spes þarna á SpániJ en það hafðist og okkur fannst þetta svo sem ekki eins hræðilegt og við hefðum óskaðJ hálfgerð vonbrigðiL



Svo er næsta mál á dagskrá að renna upp á hálendið, Þura vinkona er í Áfanga og við Lárus Ingi ætlum að fara og vera henni og Siggu til samlætis. Förum á mánudag og komum aftur á föstudag. Þar ætlum við að taka því þvílíkt rólega og hvílast eftir þetta skemmtilega en erfiða frí á Costa del sol, allavega eru svona frí soldið erfið fyrir mig.

ég er á spáni;)

09. júní 2008 klukkan 20:24
og tad er audvitad ekki íslenskt lyklabord á tessari tolvuÖskrandi

en tá er bara ad látast vera ad senda sms og ekki arga úr sér lungun af pirringi.  vid komum hér á fimmtudag og bókudum okkur inn á tetta fína hótel og fórum svo beint aftur út og keyrdum til Sevilla.  tar gistum vid á frábaeru hóteli í voda trongum stíl, allt flísalagt og flott.  á fostudag var svo brúdkaup í rádhúsinu, sem er líklega gomul holl og tad var bara flott og hátídlegt.
á eftir var svo veisla frá klukkan átta og fram eftir nóttu. geggjad stud.

nú erum vid svo komin aftur nidur á costa del sol og njótum sólar í gódu yfirlaeti hér á hótelinu. ég leigdi mér bíl svo ad vid getum nú komist ferda okkar og skodad okkur eitthvad um. og verslad!!!

en af tví ad tetta eru erfid skrif med spaensku lyklabordi tá laet ég stadar numid í bili og sé til hvort ég nenni ad gera meira seinna.

ola

kaffiprófið

13. maí 2008 klukkan 13:48
Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
http://kristk.klaki.net/annad/kaffi/">Hvernig kaffi ert þú eiginlega?


þetta er lýsingin sem ég fékk á mér, held að ég þurfi að taka eitthvað annað prófUllandi

Latte!

Þú ert skapstór og íhaldsamur einstaklingur sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Undir vissum kringumstæðum leyfirðu þér að prófa nýjungar, en þó aðeins að vel athuguðu máli.

Þú samanstendur af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.

lítið eitt

02. apríl 2008 klukkan 08:23

Ég er nú ekki búin að vera dugleg að blogga núna í langan tíma, og það er ekki af því að það sé svo lítið að gerast, heldur er það einhvernveginn bara þannig að sumt á ekki heima á veraldarvefnum.  Og þótt maður tali undir rós eru alltaf einhverjir sem geta orðið sárir ef það er eitthvað miður gott í gangi.  Það hefur svosem ekki verið neitt mikið miður gott í gangi, allavega ekkert sem er of stórt til að tækla þegar maður hefur Lögmálið sér til halds og trausts.  Ég kyrja Nam-mjóhó-renge-kjó tvisvar á dag og það hjálpar mér að tengjast minni meðfæddu visku sem ég eins og allir aðrir hef aðgang að.  Allt sem ég þarf er í mér, öll viskan í heiminum er innra með mér.  Líka þér. 

 
FRÁ DEGI TIL DAGS

 
Því fæðast mannlegar verur?  Þessi spurning hefur vakið mikinn áhuga.  Toda forseti setti sína skoðun fram á auðskilinn hátt.  Nefnilega, þessi heimur er staður fyrir fólk til að, eins og stendur í Lótus sútrunni, “njóta sín áreynslulaust.”  Við vorum fædd hér til að njóta lífsins gæða út í gegn.  Trú á búddisma Daishonin er það sem gerir okkur kleift að kalla fram þann mikla lífskraft sem við þurfum til að lifa slíku lífi.

 
1958  Dánardagur Josei Toda, annars forseta Soka Gakkai 


Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

supercalifragilifragilisticexpialidocious

26. mars 2008 klukkan 23:11

já stundum þarf maður bara að syngja til að halda geðheilsunni, og það er sagt að tónlist sé svo góð heilsubót, við þunglyndi og allskyns kvillum.

 
Fyrir þá sem ekki skilja hvað stendur í fyrirsögninni þá er þetta úr lagi í “Mary Poppins” og við vinkonurnar sungum þetta alveg óspart hvar sem var á okkar sokkabandsárum.  Sungum þetta í strætó og búðum og þegar við vorum að labba milli hverfa og eiginlega bara hvar sem er.  Stundum var okkur hent út einhversstaðar útaf hávaða, en okkur var nákvæmlega sama, við vorum svo ægilega glaðar.  

 
FRÁ DEGI TIL DAGS

 
26.mars

 
Það sem skiptir fyrst og fremst máli er fólk – ekki fræga, valdamikla, ríka, sérfræðimenntaða fólkið, eða þeir sem samfélagið metur sem frábært eða lofsvert.  Tilgangur allra hluta verður að vera hamingja fólksins.  Allt annað ætti aðeins að vera leið að því marki.  Þeir sem þekkja ekki þetta grundvallaratriði og líta niður á fólkið og notfæra sér það eru ómerkilegir út í gegn og fyrirlitlegir; þeir standa í vegi fyrir hamingju fólksins.
 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lára Þórisdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Um mig: ég er svo spes..... en erum við það ekki öll??? hvert á sinn sérstaka hátt??? Netfang: ditto@simnet.is
  • Annað: bænaþema mánaðarins er STÓRU MÁLIN Á ÍSLANDI, - heilbrigðiskerfið, kvótakerfið, álver, fasteignamarkaðurinn, notkun smokksins, umferðarmál…………………..